Íslykill
Athugið að núna geta einstaklingar virkjað rafrænu skilríkin hvar sem er í heiminum. Flestir ættu því að geta notað rafræn skilríki í stað Íslykils.
Auðkennisappið er auðveld, þægileg og örugg leið til að auðkenna sig á vefnum og framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Appið er hægt að nota hvar sem er í heiminum, óháð símafélögum bæði á íslenskum og erlendum farsímanúmerum.
Í nýjustu útgáfu Auðkennisappsins er hægt að virkja rafræn skilríki með sjálfafgreiðslu, hvar sem er í heiminum - Lesa nánar
Íslykill er auðkenningarleið sem gefinn var út áður en Rafræn skilríki komu til sögunnar. Rafræn skilríki eru öruggari og munu taka alfarið við af Íslykli í komandi framtíð. Ef einstaklingur á kost á því að nýta rafræn skilríki skal ávalt velja þann kost fram yfir Íslykil.
Þarftu aðgang að Mínum síðum Ísland.is fyrir hönd fyrirtækis?
Prókúruhafar fyrirtækja geta nú skráð sig inn á Mínar síður með sínum persónulegu rafrænu skilríkjum og skipt yfir á fyrirtæki. Ekki þarf til þess Íslykil. Nánar um aðgangsstýringu á Mínum síðum.
Algengar fyrirspurnir um Íslykil
Athugið að Íslykilinn hættir í notkun 1.september 2024, aðeins skal sækja um Íslykil í neyð ef einstaklingur á ekki kost á rafrænum skilríkjum.
Þjónustuaðili
Stafrænt Ísland